SKÁLDSAGA Á ensku

A Tale of Two Cities

A Tale of Two Cities er söguleg skáldsaga eftir Charles Dickens. Margir kannast við upphafsorðin: "It was the best of times, it was the worst of times..." Sagan kom fyrst út árið 1859 í tímaritinu All the Year Round sem Dickens sjálfur gaf út.

Sögusviðið er borgirnar London og París á tímum frönsku byltingarinnar. Hér segir frá franska lækninum Alexandre Manette, sem látinn er laus úr 18 ára varðhaldi í Bastillunni og kemst í samband við Lucie, dótturina sem hann hafði aldrei áður hitt. Einnig koma við sögu eiginmaður Lucie og vínkaupmennirnir herra og frú Defarge, ásamt fleirum. Bakgrunnur sögunnar er svo aðdragandi frönsku byltingarinnar og ógnarstjórnarinnar.


HÖFUNDUR:
Charles Dickens
ÚTGEFIÐ:
2018
BLAÐSÍÐUR:
bls. 442

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :